Æskilegt fæði eftir skurðaðgerð í munni
Fljótlega eftir aðgerð er gott fá sér næringu í fljótandi formi. Það er mjög mikilvægt að drekka nóg af vökva fyrsta sólahringinn. Mikilvægt er að forðast alla fæðu sem þarf að tyggja að einhverju leyti fyrstu 2 klst eftir aðgerð á meðan deyfingin er enn í virkni.
Hugmyndir að fæðu í fljótandi formi:
- Jógúrt
- Skyr
- Búðingur – t.d próteinbúðingur, súkkulaði-/karamellubúðingur
- Rjómaís (með skeið, alls ekki röri)
- Súpur (kæla örlítið niður og reyna að hafa hana eins tæra og hægt er)
- Ávaxtadrykkir (án aldinkjöts) – t.d Innocent og Froosh
Að tveimur dögum liðnum frá aðgerð má færa sig yfir í mjúka fæðu og halda sig við hana þar til saumarnir eyðast sem tekur vanalega 7-10 daga.
Mikilvægt er að taka mun minni matarbita en vant er svo hægt sé að stjórna „flæði fæðunar“ betur í munni og matur fari síður í sárin.
Hugmyndir að mjúku fæði til viðbótar við fljótandi fæði:
- Brauð með smjöri, kæfu, smurosti – án skorpu og korna
- Fiskur, kjúklingur, kartöflur – með sósu til að mýkja
- Súpur
- Stappaður banani
- Gufusoðið stappað grænmeti
- Grjónagrautur og hafragrautur – mauksoðnir
- Soðin og steikt egg
…..og önnur sambærileg fæða.